Skilmálar

Vefurinn Lagom.is er í eigu Ólafs Carl Gränz
Heimilisfang: Hófgerði 13, 200 Kópavogur
Sími: 786-2988
Netfang: lagom@lagom.is

Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslunina Lagom.is samþykkir þú þessa skilmála.


Almennt

Lagom.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða að hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.


Stærð og litur prentverka

Litir geta verið örlítið öðruvísi á veggspjöldunum sjálfum en á skjánum, þar sem litbirting er mismunandi eftir tölvu- og símaskjám. Einnig getur útlit plakats breyst smávægilega milli stærða vegna mismunandi hlutfalla.


Höfundaréttur

Eigandi og höfundarétthafi verka á vefsíðunni (www.lagom.is), þ.m.t. vörumerki, myndir, texti, ljósmyndir og grafík, er Lagom.is og Ólafur Carl Gränz, nema annað sé tekið fram. Verkið er höfundavarið samkvæmt íslenskum og alþjóðlegum lögum. Um höfundarétt gilda höfundalög nr. 73/1973, með áorðnum breytingum.

Með kaupum fær notandi afnotarétt af hönnun Lagom. Ekki má breyta, endurgera, fjölfalda, selja eða deila verkum, að hluta til eða í heild, með þriðja aðila án samþykkis höfundar. Þetta gildir einnig um drög og rafræn skjöl. Ef brotið er á höfundarétti eða skilmálum hefur seljandi rétt á að sækja fjárhagslegar bætur og/eða stöðva óheimila notkun.


Vörur

Vörur í vefverslun Lagom.is eru framleiddar af fyrirtækinu. Vörurnar eru til persónulegra nota eingöngu. Endursala er óheimil án skriflegs leyfis. Við áskiljum okkur rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.


Nákvæmni upplýsinga

Heimasíðan er uppfærð reglulega og við kappkostum að leiðrétta villur. Þó getum við ekki ábyrgst að allar upplýsingar séu ávallt réttar eða uppfærðar. Upplýsingar birtast því með fyrirvara um innsláttarvillur og uppfærslutafir.

Við reynum að sýna vörumyndir og liti eins nákvæmlega og mögulegt er, en minniháttar litamunur getur komið upp vegna skjás, prentunar eða pappírsgerðar. Ef þú hefur áhyggjur af þessu, vinsamlegast hafðu samband á lagom@lagom.is.


Verðlagning & greiðsla

Öll verð í vefverslun innihalda virðisaukaskatt. Verð eru gefin upp í íslenskum krónum og birt með fyrirvara um prentvillur. Við áskiljum okkur rétt til að leiðrétta rangar verðupplýsingar og hætta við pöntun ef rangt verð hefur verið gefið upp.

Greiðsla fer fram í gegnum örugga greiðslugátt Landsbankans. Ef upp kemur vandamál með greiðslu áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.


Afhendingartími & sending

Vörur eru prentaðar eftir pöntunum og afhending tekur alla jafna 2–4 virka daga frá greiðslu.


Gallar í prentun

Ef um sérhönnun er að ræða er send lokapróförk til samþykktar. Seljandi ber ekki ábyrgð á stafsetningar- eða innsláttarvillum sem viðskiptavinur samþykkir. Ef prenta þarf aftur vegna mistaka viðskiptavinar greiðir hann kostnað.

Ef galli er á prentun af hálfu Lagom munum við annaðhvort prenta vöruna aftur án kostnaðar eða endurgreiða kaupverð. Sendingarkostnaður vegna galla er greiddur af seljanda.


Trúnaður

Persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar samkvæmt lögum nr. 77/2000 um persónuvernd. Öllum upplýsingum er haldið trúnaðarmál og þær eru aðeins notaðar til að ljúka viðskiptum. Við geymum aldrei kortanúmer og deilum ekki upplýsingum með þriðja aðila.


Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.


Annað

Ef þú hefur spurningar, hafðu samband á lagom@lagom.is og við svörum eins fljótt og auðið er.